Friday, February 06, 2009
Kvikmyndagagnrýni
Valkyrie (Valkyrjan)**
Leikstjóri: Bryan Singer. Aðalhlutverk: Tom Cruise, Kenneth Branagh, Billy Nighy, Tom Wilkinson, Terence Stamp, Eddi Izzard. Söguþráður: Tom Cruise vill drepa Hitler svo hann setur sprengju undir skrifborðið hjá honum. Lengd: 120 mín. Úrskurður: Alveg ágæt mynd. Tveir ókostir: Maður hefur séð marga þessara leikara ýmist að strippa (Tom Wilkinson í The Full Monty) eða sem dragdrottningar (Terence Stamp í Priscilla: Queen of the desert) að maður á nokkuð erfitt með að taka þá alvarlega sem herforingja í æðstu stöðum í þýska hernum. Annar ókostur: þrátt fyrir að þetta sé margmilljónadollara Hollywood framleiðsla með Tom Cruise í aðalhlutverki og marga af þekktustu leikurum Bretlands í framlínunni, þá tókst kvikmyndagerðamönnunum ekki að koma í veg fyrir að ÞAÐ SÆIST Í FOKKING HLJÓÐNEMANN FYRIR OFAN LEIKARANA AMK FIMM SINNUM!!!